Þýskaland gaf lýðræðinu stig í Eurovision Hugrún Halldórsdóttir skrifar 27. maí 2012 13:10 Loreen sigraði í Eurovision í gær. mynd/AP
Þýski kynnirinn í Eurovision gaf lýðræðinu stig í gær þegar hann talaði um mikilvægi þess og sagði Evrópu fylgjast með gangi mála í Aserbaídjan. Svíar sem sigruðu með yfirburðum virðast vera í vandræðum með að finna vænlegan stað til að halda keppnina að ári liðnu. Hin 28 ára gamla Loreen frá Svíþjóð var þakklát þegar úrslitin lágu fyrir í gærkvöldi. Á blaðamannafundi sagðist Loreen ekki hafa hugsað um flutninginn sem hópvinnu og það hafi auðveldað henni að standa á sviðinu og bætti við að hún væri í raun feimin. Mistök hennar í flutningi fyrir dómnefndum kvöldið áður, þegar hún gleypti gervisnjókorn og þurfti að hósta í miðju lagi, virðist ekki hafa komið að sök því lag Svíþjóðar fékk 372 stig, á annað hundrað stigum meira en lag Rússlands sem var í öðru sæti með 259 stig. Ísland fékk 46 stig frá tíu þjóðum og endaði í 19. sæti. Finnar gáfu íslenska framlaginu flest stig, eða sjö talsins. Danir, Ungverjar og Eistar gáfu Gretu og Jónsa sex stig, Norðmenn fimm, Spánverjar, Slóvenar og Slóvakar fjögur, Þjóðverjar þrjú og Kýpverjar eitt. Íslenski hópurinn fór fljótlega eftir keppnina út á flugvöll og er nú á leið til landsins. Það voru þó ekki einungis keppendurnir sem vöktu athygli í gær því þýski kynnirinn sendi gestgjöfunum óvænt skilaboð rétt áður en hann fór yfir stigagjöfina. Hin þýska Anke sagði það gott að geta kosið og óskaði gestgjöfunum alls hins besta í för sinni og bætti við að Evrópa fylgdist með og gaf þar í raun lýðræðinu stig sem er að mati margra ekki upp á marga fiska í Aserbaídjan. Svíar eru þegar byrjaðir að velta fyrir sér keppninni sem þeir halda að ári liðnu. Globen-höllin í Stokkhólmi þykir henta vel en það er alls kostar óvíst að hún verði fyrir valinu því skipuleggjendur heimsmeistaramótsins í íshokkí hafa þegar bókað höllina á sama tíma og Eurovision fer fram. Hvort að þeir láti Eurovision aðdáendum hana eftir skulum við ósagt látið en samkvæmt sænskum miðlum eru nokkrir aðrir vænlegir staðir í Stokkhólmi sem og Gautaborg og Malmö.
Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Sjá meira