Innlent

Segir stjórnarandstöðu beita nýjum aðferðum í málþófi

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir að þingfundir gætu orðið vel fram á sumar. Hann segir að eðli málþófsins hafi breyst á þinginu. Stjórnarandstaðan hafi viðhaft ný vinnubrögð í þessum efnum sem tefji fyrir öllu þingstarfi.

Samkvæmt dagskrá þingsins átti þingstörfum að ljúka 31. júní, sem er á fimmtudaginn næstkomandi. Steingrímur J. Sigfússon, sjávarúvegs- og landbúnaðarráðherra, segir að það geti stefnt í langt sumarþing. Þótt ríkisstjórnin sé með 90 ókláruð mál á dagskrá muni hún leggja áherslu á stóru málin.

Steingrímir líkir þessu við vorvertíð sjómanna í grásleppu. Eða ókláruð vorverk í landbúnaði. Það þýði ekkert að hætta þó það gangi illa. Sú skylda hvíli á þinginu að ljúka sínum verkefnum. Og menn þurfi að sýna þá ábyrgð að gera það.

Mikið hefur verið gert úr málþófi stjórnarandstöðunnar á Alþingi að undanförnu. Hefur því meðal annars verið haldið fram að einstakir þingmenn hafi hreinlega haldið þinginu í gíslingu með málþófi sem birtist í stuttum ræðum og andsvörum frá samherjum.

Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur sagt þessa umræðu skrýtna. Stjórnarandstaðan hafi ekki viðhaft önnur vinnubrögð en þau sem hafi tíðkast árum saman.

Þá var bent á að allir lengstu ræður í sögu þingsins hefðu verið fluttar af núverandi stjórnarþingmönnum og ráðherrum. Forsætisráðherra er á toppnum með 10 klukkutíma langa ræðu.

Steingrímur segir að það hafi hins vegar orðið eðlisbreyting í þessum efnum. Hann segist ekki vera að lýsa sig saklausan af málþófi frá tíma sínum í stjórnarandstöðu, en nálgunin sé önnur. Menn hafi flutt langar ræður og látið til sín taka þegar stór mál hafi verið til umræðu og grundvallar hagsmunir í húfi.

Ekki hafi þekkst hér áður að menn beiti málþófi með þeirri aðferð að nýta tíma í fyrirspurnir um störf þingsins og ítrekað flytja stuttar ræður og fái andsvör frá samherjum sínum eða „meðsvör" eins og hann kallar þetta. Hann segir að þessi nálgun stjórnarandstöðunna rhafi staðið þingstörfum fyrir þrifum í raun. Sjá viðtal við ráðherrann um þessi mál í myndskeiði með frétt. thorbjorn@stod2.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×