Innlent

Fimm teknir úr umferð vegna ölvunar- og dópaksturs

Fimm ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu í nótt vegna ölvunar- eða fíkniefnaaksturs.

Fíkniefni fundust í fórum eins þeirra og var í framhaldinu gerð húsleit á heimili hans. Þar fundust líka fíkniefni, en lögregla gefur ekki upp hversu mikið það var. Annar ók of hratt og einn var með útrunnin ökuréttindi.

Nokkur minniháttar fíkniefnamál komu einnig til kasta lögreglunnar í nótt, og nokkur útköll vkoru vegna hávaða í heimahúsum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×