Innlent

Eflaust skálað í kampavíni fyrir Vaðlaheiðargöngum

Erla Hlynsdóttir skrifar
Göng undir Vaðlaheiði stytta þjóðveginn um 16 kíló
Eflaust hafa einhverjir skálað í kampavíni í gær, segir stjórnarformaður Vaðlaheiðarganga hf. Framundan eru samningaviðræður við lægstbjóðanda. Enn er ekki hægt að segja til um hvenær framkvæmdir hefjast.

Alþingi samþykkti í gær frumvarp sem heimilar fjármálaráðherra að lána félaginu Vaðlaheiðargöng hf. 8,7 milljarða króna til gerðar ganganna.

29 þingmenn samþykktu frumvarpið, 13 voru á móti og fimm sátu hjá, þar af þrír stjórnarliðar.

Félagið Vaðlaheiðargöng hf. er í eigu Vegagerðarinnar, sem fer með 51 prósents hlut, og Greiðrar leiðar sem á 49 prósent.

Kristín H. Sigurbjörnsdóttir er stjórnarformaður félagsins. Hún segir að framundan séu samningaviðræður við lægstbjóðanda, ÍAV og Marti Contractors Lts frá Sviss sem komu með sameiginlegt tilboð upp á 8,8 milljarða.

„Síðan þarf að klára þessa lánasamninga gagnvart fjármálaráðuneytinu og hlutafjáraukninguna. Það er alveg hellingur af verkefnum framundan. Þetta hefur verið á bið þangað til núna og nú bara göngum við í verkefnalistann," segir Kristín.

Fundir með fulltrúum ÍAV og Marti eru fyrirhugaðir eftir helgina.

Kristín er sannfærð um að framkvæmdin standi undir sér, en greiða á ríkislánið til baka á 28 árum með tekjum af veggjöldum. „Já, miðað við okkar útreikninga þá teljum við svo vera," segir hún.

Enn er óljóst hvenær framkvæmdir hefjast og þar með hvenær þeim lýkur, en þetta skýrist allt frekar í þeim viðræðum sem nú fara í gang, að sögn Kristínar.

Kristín segir ánægjulegt að óvissunni um fjármögnun ganganna hafi nú verið eytt, enda hafi félagið fyrir átta mánuðum opnað fyrir útboð í þeirri trú að gögnin yrðu að veruleika.

Þannig að það var skálað í kampavíni í gær, eða hvað?

„Jú, örugglega hafa einhverjir gert það," segir hún. „Það er ánægjulegt að það sé komin niðurstaöa og að núna sé hægt að halda áfram vinnunni."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×