Innlent

Hættan á gróðureldum fer vaxandi í þurrkatíðinni

Gissur Sigurðsson skrifar
mynd/ teitur.
Hætta á gróðureldum fer vaxandi dag frá degi vegna langvarandi þurrka. Almannavarnir kynntu í gærkvöldi fólki í Skorradal drög að viðbragðsáætlun við slíkum eldum og verða viðlíka áætlanir gerðar fyrir fleiri svæði víða um land.

Þrátt fyrir að veðurguðirnir hafi brugðist við regndansi bænda í gær með því að senda þeim úrhellis rigningarskúr með þrumum og eldingum, gerði það ekki meira en að slá aðeins á þurrkinn um tíma, og áfram er þurrkatíð í veðurspánum.

Með gróðureldum er ekki aðeins átt við skógarelda, heldur elda í gróðurþekjunni sjálfri, eins og Mýraeldana fyrir nokkrum árum. Við gerð viðbragðsáætlunar eins og í Skorradal, er sjónum sérstaklega beint að sumarbústaðabyggðum og fólk upplýst um fyrirbyggjandi aðgerðir og fyrstu viðbrögð ef eldur kemur upp.

Einnig að viðbrögðum við boðaðri rýmingu í gegnum farsíma, og verður sú útfærsla æfð í Skorradal á morgun.

Að sögn Rögnvaldar Ólafssonar í almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra hafa ýmsar sveitarstjórnir, einkum þar sem saman fara skógar og sumarhúsabyggðir, sýnt áhuga á viðbragðsáætlunum fyrir sín svæði. Það verður skoðað nánar, þegar áætlunin fyrir Skorradal verður fullbúin, og þá orðin einskonar fyrirmynd fyrir áætlanir annarsstaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×