Fjögur skemmtiferðaskip til borgarinnar sama daginn - 8000 farþegar 15. júní 2012 13:02 Þrjú stór skemmtiferðaskip mættust skammt fyrir utan Reykjavík síðasta sumar. Tvo þeirra voru á leið til höfuðborgarinnar en eitt nýfarið úr höfn á leið yfir hafið.
Ferðamönnum í Reykjavík fjölgar all hressilega á mánudaginn kemur en þá vill svo til að fjögur skemmtiferðaskip leggjast að bryggju í borginni. Um borð eru átta þúsund erlendir ferðamenn en aldrei áður hafa jafnmargir farþegar komið hingað til lands á einum og sama deginum. TVG-Zimsen sér um að þjónusta þrjú þessara skipa og segir Björn Einarsson framkvæmdastjóri ljóst að dagurinn verði mjög annasamur, enda mikið umstang að þjónusta eitt skip, hvað þá þrjú sama daginn. Skipin sem fyrirtækið þjónustar heita Artania, Costa Pacifica og Clipper Adventurer og koma þau öll á mánudagsmorgun. Nokkru síðar, eða eftir hádegi kemur síðan skipið Aidamar. Þjónusta TVG-Zimsen felst m.a. í aðstoð við áhafnarskipti, útvegun vista, varahluta og læknisþjónustu ásamt öllum samskiptum við höfn, toll og útlendingaeftirlit. TVG-Zimsen þjónustar flest skemmtiferðaskip sem hingað til lands koma. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að búist sé við nærri 130 viðkomum hjá skemmtiferðaskipum á vegum TVG-Zimsen á öllu landinu í sumar. ,,Þetta er töluverð aukning frá síðasta ári eða um 30%. Við erum að horfa á allmikla aukningu ferðamanna með skemmtiferðaskipum hingað og það er því afar mikilvægt að hagsmunaðilar og stjórnvöld snúi bökum saman og marki sameiginlega stefnu í þessum málum. Það er nauðsynlegt að það séu góð vaxtaskilyrði til að taka við sífellt fjölmennari hópi ferðamanna sem koma með skemmtiferðaskipum. Það eru mikil verðmæti og möguleikar á þessum markaði og því betri sem umgjörðin er því öflugra verður þetta. Það þarf að horfa fram á við og tryggja að þessi vaxtaskilyrði séu fyrir hendi," segir Björn ennfremur.
Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Hyggst þyngja refsingar við að hagnýta börn til afbrota Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og litlar upplýsingar Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Sjá meira