Vilja allar virkjanahugmyndir á Hellisheiði á ís 15. júní 2012 16:43
Fimm náttúruverndarsamtök hvetja til þess að allri frekari jarðvarmavinnslu á Hellisheiði verði frestað uns lausn finnst á þeim mengunarvandamálum sem virkjunum fylgja. Þetta kemur fram í ályktun frá félögunum í tilefni af þeim fregnum að Orkuveitan sjái ekki fram á að standast þau heilsuverndarmörk sem sett hafa verið fyrir árið 2014. „Nú er ljóst að Orkuveita Reykjavíkur ræður ekki við brennisteinsmengun á Hellisheiði. Á ársfundi fyrirtækisins kom fram að brennisteinsmengun mun ekki standast heilsuverndarmörk árið 2014 við óbreyttar aðstæður og verða yfir þeim mörkum sem stjórnvöld hafa sett til að verja heilsu almennings, en brennisteinsvetni veldur sjúkdómum í öndunarfærum. Undirrituð náttúruverndarsamtök krefjast þess að fundin verði ásættanleg lausn á málinu," segir í tilkynningu frá samtökunum en þau eru: Framtíðarlandið, Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Náttúruverndarsamtök Suðurlands og Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands. „Eftir að nýting jarðhita var aukin á Hellisheiðarsvæðinu fyrir fáum árum hefur mælst mun meiri styrkur brennisteinsvetnis á höfuðborgarsvæðinu og í sveitarfélögum í nágrenni virkjunarinnar. Brennisteinsvetni getur haft áhrif á heilsu fólks, gróður og mannvirki. Höfuðverkur og ógleði eru fylgifiskar brennisteinsmengunar og í miklu magni eru áhrifin mjög hættuleg. Minna er vitað um langtímaáhrif viðvarandi mengunar á heilsu fólks, en vísbendingar gefa til kynna að brennisteinsvetni geti valdið umtalsverðu heilsutjóni. Nýlegar rannsóknir hérlendis gefa vísbendingu um að brennisteinsmengun hafi neikvæð áhrif á heilsu fólks, en í rannsókninni er sýnt fram á tengsl milli aukinnar brennisteinsmengunar og aukinnar sölu á astmalyfjum á höfuðborgarsvæðinu. Þetta þarf að rannsaka frekar," segir í ennfremur. Þá segir, að í ljósi upplýsinga frá OR sé einsýnt að ekki er verjandi að reisa fleiri jarðvarmavirkjanir á svæðinu. „Jarðvarmavinnsla til raforkuframleiðslu á Íslandi er ekki sjálfbær á meðan vinnslan er jafn ágeng og raun ber vitni. Þá fylgir jarðvarmavirkjunum mikið rask á yfirborði og lausnir hafa ekki verið fundnar á því hvernig megi halda brennisteinsmengun í lágmarki og hvað eigi að gera við affallsvatnið. Auk þessa er nýtingin einungis 12-15% þegar um rafmagnsframleiðslu er að ræða sem verður að teljast sóun á auðlindum þjóðarinnar." Að mati samtakanna hníga því öll rök að „fresta allri frekari jarðvarmavinnslu til raforkuframleiðslu á svæðinu á meðan ekki hefur fundist lausn á þeim mengunarvandamálum sem fylgja virkjununum. Með tilliti til nýrra jarðvarmavirkjana á svæðinu er ábyrgð kjörinna sveitarstjórnarfulltrúa og þingmanna sem nú fjalla um rammaáætlun afar mikil. Undirrituð náttúruverndarsamtök krefjast þess að náttúran og heilsa fólks fái notið vafans og hugmyndir um frekari virkjanir á svæðinu verði settar á ís."
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira