Innlent

Sneri á lesblinduna og dúxaði

Erla Hlynsdóttir skrifar
Sem barn taldi hún sig vera heimska og lesblindan háði henni fram á fullorðinsár. Hún var komin á sextugsaldur þegar hún lærði nýja tækni við lestur, og tók stúdentspróf. Guðríður Gyða Halldórsdóttir segir að þá fyrst hafi lífið byrjað.

Í skólanum Lesblindulist í Mosfellsbæ eru leir og boltar helstu námsgögnin. Þar er unnið útfrá kenningum Ronald Davis sem sjálfur lærði ekki að lesa fyrr en hann var 37 ára.

Þegar Guðríður var í grunnskóla fékk hún jafnan einn og tvo í einkunn, í mesta lagi þrjá. Hún átti sérstaklega erfitt með stærðfræði, en listir og tungumál höfðuðu til hennar.

„Maður þorði ekki að biðja um hjálp því ef maður fór að biðja um hjálp þá komst fólk að því að þú ert heimsk," segir Guðríður.

Löngu seinna var hún greind með lesblindu, og þá kom einnig í ljós að hún er yfir meðalgreind.

Guðríður var 53 ára gömul þegar hún fór á námskeið hjá Lesblindulist. Hún hefur nú lokið stúdentsprófi, dúxaði í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og stefnir á mannfræði í Háskóla Íslands.

Í meðfylgjandi myndskeiði er rætt við Guðríði um reynslu hennar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×