Innlent

Hornsteinn lagður að Búðarhálsvirkjun

JHH skrifar
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, lagði hornstein að virkjuninni.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, lagði hornstein að virkjuninni. Mynd/ Magnús Hlynur Hreiðarsson.
Hornsteinn var lagður að Búðarhálsvirkjun við hátíðlega athöfn í stöðvarhúsinu í dag. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar setti athöfnina.

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, lagði hornsteininn og naut við það aðstoðar Pálmars Óla Magnússonar, framkvæmdastjóra framkvæmdasviðs og Kristins Eiríkssonar, staðarverkfræðings Landsvirkjunar.

Auk forseta Íslands fluttu ávörp við athöfnina Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, Bryndís Hlöðversdóttir, formaður stjórnar Landsvirkjunar og Guðlaugur V. Þórarinsson, verkefnastjóri Búðarhálsvirkjunar sem lýsti framkvæmdum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×