Innlent

Kelduskóli og Háteigsskóli hlutskarpastir í Skrekk

Mynd úr safni frá Skrekk í fyrra.
Mynd úr safni frá Skrekk í fyrra.
Atriði Kelduskóla og Háteigsskóla urðu hlutskörpust á fyrsta undanúrslitakvöldi Skrekks, hæfileikakeppni grunnskólanna, sem fram fór í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi.

Átta skólar tóku þátt í gærkvöldi, en tveir fyrrnefndu komast áfram í lokakeppnina á mánudag.

Í tilkynningu frá dómnefnd segir að erfitt hafi verið að gera upp á milli atriða, sem voru hvert öðru betra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×