Innlent

Stærsti krókódíll heims tengdur Íslandi

John var snemma annt um eðlur og eyddi mestum tíma æsku sinnar í skóginum og við tjarnirnar í bakgarðinum heima.
John var snemma annt um eðlur og eyddi mestum tíma æsku sinnar í skóginum og við tjarnirnar í bakgarðinum heima.
Nýlega bættist ný krókódílategund í ættlegg skriðdýranna og er hún nefnd Crocodylus thorbjarnarsoni í höfuðið á John Thorbjarnarson sem lést fyrir tveimur árum úr malaríu á Indlandi.

John var einn fremsti krókódílafræðingur í heimi og lék stórt hlutverk í verndun rándýra í heiminum. John fæddist árið 1957 í Bandaríkjunum, sonur Björns Þorbjarnarsonar skurðlæknis og Margaret Thorbjarnarson, konu hans.

„Hann var orðinn eins konar risi á alþjóðavísu í rannsóknum og vernd á krókódílum,“ segir Andri Snær Magnason, frændi Johns. „Hann var mjög hógvær maður sem þurfti að vinna með ættbálkum og spilltum ríkisstjórnum.“

Andri Snær bendir á að frændi hans hafi bjargað mörgum tegundum frá útrýmingarhættu. „Hann var nýbúinn með bók um kínverska krókódílinn en það voru aðeins 100 slíkir eftir í Jangtse-fljóti þegar farið var að bjarga þeim.“

Steingervingar sem grafnir voru upp í Kenía á 7. og 8. áratugnum voru taldir vera af furðu stórum Nílarkrókódíl en nýlega staðfestu fræðimenn að um forsögulega krókódílategund væri að ræða. Hin nýuppgötvaða tegund hefur verið nefnd í höfuðið á John. Tegundin er talin hafa lifað fyrir tveimur til fjórum milljónum ára og jafnvel hafa setið fyrir fornmönnum og gleypt þá í heilu lagi þegar þeir sóttu sér vatn á sléttum Mið-Afríku. Hann er talinn hafa getað orðið níu metra langur.

„John er gott dæmi um þá sem fylgja æskudraumum sínum. Það má segja að æskudraumurinn hafi ræst þegar stærsti krókódíll í heimi var nefndur eftir honum,“ segir Andri Snær.- bþh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×