Stærsti krókódíll heims tengdur Íslandi 11. maí 2012 08:45 John var snemma annt um eðlur og eyddi mestum tíma æsku sinnar í skóginum og við tjarnirnar í bakgarðinum heima.
Nýlega bættist ný krókódílategund í ættlegg skriðdýranna og er hún nefnd Crocodylus thorbjarnarsoni í höfuðið á John Thorbjarnarson sem lést fyrir tveimur árum úr malaríu á Indlandi. John var einn fremsti krókódílafræðingur í heimi og lék stórt hlutverk í verndun rándýra í heiminum. John fæddist árið 1957 í Bandaríkjunum, sonur Björns Þorbjarnarsonar skurðlæknis og Margaret Thorbjarnarson, konu hans. „Hann var orðinn eins konar risi á alþjóðavísu í rannsóknum og vernd á krókódílum,“ segir Andri Snær Magnason, frændi Johns. „Hann var mjög hógvær maður sem þurfti að vinna með ættbálkum og spilltum ríkisstjórnum.“ Andri Snær bendir á að frændi hans hafi bjargað mörgum tegundum frá útrýmingarhættu. „Hann var nýbúinn með bók um kínverska krókódílinn en það voru aðeins 100 slíkir eftir í Jangtse-fljóti þegar farið var að bjarga þeim.“ Steingervingar sem grafnir voru upp í Kenía á 7. og 8. áratugnum voru taldir vera af furðu stórum Nílarkrókódíl en nýlega staðfestu fræðimenn að um forsögulega krókódílategund væri að ræða. Hin nýuppgötvaða tegund hefur verið nefnd í höfuðið á John. Tegundin er talin hafa lifað fyrir tveimur til fjórum milljónum ára og jafnvel hafa setið fyrir fornmönnum og gleypt þá í heilu lagi þegar þeir sóttu sér vatn á sléttum Mið-Afríku. Hann er talinn hafa getað orðið níu metra langur. „John er gott dæmi um þá sem fylgja æskudraumum sínum. Það má segja að æskudraumurinn hafi ræst þegar stærsti krókódíll í heimi var nefndur eftir honum,“ segir Andri Snær.- bþh
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira