Innlent

Hjólauppboð lögreglu í dag

Rúmlega hundrað reiðhjól verða boðin upp hjá óskilamunadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag. Um er að ræða reiðhjól sem fundist hafa í umdæminu en enginn hefur hirt um að sækja.

Lögreglan vekur athygli á því að tilkynnt var um á sjöunda hundrað stolin reiðhjól á síðasta ári. Aðeins hluti þeirra berst til óskilamunadeildar, jafnvel mánuðum eftir að þeim er stolið. Þá hvetur lögreglan fólk til að skrá hjá sér raðnúmer reiðhjóla sinna til að auðvelda leit ef þeim er stolið.

Alla jafna er margmenni á þessu árlega uppboði, sem hefst klukkan eitt í húsnæði Vöku í Skútuvogi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×