Hreyfihamlaður ofurhugi klífur Hvannadalshnjúk Hugrún Halldórsdóttir skrifar 9. júní 2012 20:00 Leifur situr hinn sérhannaða sleða.
Leifur Leifsson, ungur maður sem hefur verið bundinn við hjólastól alla ævi, hefur æft níu til tíu sinnum í viku síðastliðna mánuði og styrkt hendur sínar í því skyni að komast upp á hæsta tind landsins. Leifur hefur útbúið sérstakan sleða, meðal annars úr gömlu hjóli og varahlut úr skipi, til að komast upp á Hvannadalshnjúk. Hann hefur m.a. farið með honum upp á Snæfellsjökul og tryllitækið virkar þannig að band með akkeri er dregið fram um þrjúhundruð metra og fjallagarpurinn dregur sig áfram með handknúnu hjóli. „Vöðvar sem þú ert með í fótunum eru meira en helmingi stærri en þeir vöðvar sem þú ert með í efri part líkamans. Ég vona bara að maður sé kominn í nægilega gott form," segir hann. „Svo lengi sem ég get lagt af stað þá fer ég ekkert niður aftur fyrr en þetta er búið." „Mér finnst gaman að ögra sjálfum mér og samfélaginu. Okkar helsta hindrun við að gera hluti er hugurinn." Leifur heldur af stað á föstudag og býst við að ferðin geti tekið allt að tvær vikur en hann og samferðarmenn áætla að slá upp tjaldbúðum á næturnar. Enn vantar nokkra sjálfboðaliða, vant jöklafólk til að fylgja okkar manni upp á topp, og hvetur Leifur áhugasama um að hafa samband. Áhugasömum er bent á að skoða síðuna hreyfiafl.wordpress.com „Ég get lofað tjaldútilegu, mat og mögulega uppistandi. Kassagítar kannski, ég veit það ekki, þetta verður óvissuferð," segir hann. Og þegar Leifur hefur sigrað hæsta tind landsins ætlar hann að betrumbæta sleðann. „Setja jafnvel hjól undir hann og hjóla yfir Kjöl. Hvað var ekki einhver að fara sjö sinnum upp og niður Esjuna á einum degi? Ég get alveg séð það fyrir mér."
Mest lesið Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent Hin 25 ára Silja Sóley oddviti Sósíalista í Reykjavík Innlent Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Erlent Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Erlent Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Erlent Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Erlent Netmiðlar myndu flestir liggja niðri á Íslandi Innlent Hættir í Samfylkingunni og gengur til liðs við nýjan flokk fyrir kosningar Innlent Óvíst hversu mörg börn sækja ekki skóla þrátt fyrir skólaskyldu Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Einföldun Evrópuregluverks Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Nálgumst 400 þúsund og um átján prósent íbúa eru erlendir ríkisborgarar Alda sópaði manninum út í vatnið eftir að ís féll úr jöklinum Færri krakkar á samfélagsmiðlum en fleiri vingast við gervigreind Hin 25 ára Silja Sóley oddviti Sósíalista í Reykjavík Tæp fjórtán prósent þjóðarinnar búsett erlendis Netmiðlar myndu flestir liggja niðri á Íslandi Hættir í Samfylkingunni og gengur til liðs við nýjan flokk fyrir kosningar Skora á borgina að virða íbúalýðræði og koma í veg fyrir „þrálátar deilur“ Óvíst hversu mörg börn sækja ekki skóla þrátt fyrir skólaskyldu Ók bifreið utan í þrjár aðrar á gatnamótum „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd „Það er ekkert sem tekur við og enginn sem ber ábyrgð“ Drífa Snædal snýr aftur Goddur jarðsunginn Tifandi tímasprengja, oddviti í beinni og breytt Reynisfjara Handtekin fyrir að beita opinberan starfsmann ofbeldi „Þörfin er gríðarleg“ Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Blíðan haft áhrif á gróður sem lætur þó ekki plata sig Reiknar með einu gosi í viðbót Flutti til Reykjavíkur í dag Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Réttað yfir manni sem er grunaður um að nauðga barni og konu sinni Sjá meira