Mikilvæg stig undir gegn Noregi í kvöld Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. janúar 2012 16:45 Alexander Petersson, leikmaður íslenska landsliðsins. Mynd/Vilhelm
Það er ljóst að leikurinn gegn Noregi á EM í handbolta í kvöld hefur mikla þýðingu fyrir framhaldið hjá strákunum okkar. Eins og á undanförnum stórmótum í handbolta tíðkast sú regla að liðin sem komast áfram í milliriðlakeppnina taka með sér stigin sem þau unnu sér inn gegn öðrum liðum sem einnig komast áfram. Þau lið sem fara í milliriðlakeppnina án stiga eiga nánast engan möguleika á sæti í undanúrslitum en þangað fara tvö efstu lið úr hvorum milliriðli. Ísland er án stiga eftir tap fyrir Króatíu á mánudaginn og verður því helst að ná góðum úrslitum gegn Noreg og Slóveníu til að fara áfram með tvö stig. Slóvenía gæti reyndar sett allt reikningsdæmið í uppnám með því að vinna Króatíu í dag en það verður að teljast nokkuð ólíklegt - enda Króatía með eitt allra besta landslið heims. Þrjú efstu liðin í hverjum riðli komast áfram í milliriðlakeppnina. Ef Ísland og Króatía vinna sína leiki í kvöld er ljóst að jafntefli gegn Slóveníu á föstudaginn mun duga Íslandi til að fara áfram í milliriðlakeppnina með tvö stig - því þá myndi Slóvenía sitja eftir. Norðmenn líta í það minnsta á leikinn í kvöld sem lykilviðureign upp á framhaldið að gera - þó svo að þeir séu þegar með tvö stig. „Ef Slóvenía vinnur Króatíu og svo Ísland á föstudaginn - sem mér finnst reyndar afar ólíklegt - þá gætum við flogið heim um helgina," sagði varnarmaðurinn Johnny Jensen hjá Noregi en hann verður í banni gegn Íslandi í kvöld. „Héðan í frá verðum við að berjast um þau stig sem við getum tekið með okkur í milliriðlakeppnina." Ef Ísland tapar í kvöld verða strákarnir að vinna Slóvena á föstudaginn til að komast áfram og þá án þess að taka nein stig með sér.Leikir dagsins í D-riðli: 17.10 Slóvenía - Króatía 19.10 Ísland - Noregur
Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira