Innlent

Í vandræðum á skútu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Tveir menn lentu í vandræðum á skútu rétt undan Meðallandssandi rétt eftir klukkan tólf í dag. Björgunarveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suður- og Austurlandi og björgunarskipin á Höfn og Vestmannaeyjum voru kölluð út vegna skútu í vandræðum rétt undan Meðallandssandi. Skútan er með rifin segl en hefur þó einhverja stjórn.

Vegna óhagstæðrar vindáttar og ótta um að skútan reki upp var ákveðið að senda björgunarsveitir frá Kirkjubæjarklaustri og Skaftártungu landleiðina staðinn. Einnig er búið að kalla út þyrlu frá Landhelgisgæslunni. Um 80 sjómílur er fyrir björgunarskipin að sigla á staðinn frá Höfn og Vestmannaeyjum og því ekki er búist við að þau verði komin þangað fyrr en eftir fimm til sex klukkustundir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×