Vaxtagreiður og erlend lán veikja gengi krónunnar 29. ágúst 2012 10:50
Gengi krónunnar hefur lækkað um 3% frá því um miðjan mánuðinn en þessi þróun er þvert á það sem gerðist á sama tíma fyrir ári síðan. Þá hélt gengi krónunnar áfram að styrkjast fram að október vegna innstreymis gjaldeyris frá ferðamönnum. Greining Íslandsbanka segir að ástæðurnar fyrir gengislækkuninni megi að hluta til rekja til þess að erlendir eigendur ríkisbréfaflokks hafi getað tekið út 1,6 milljarða króna í vaxtagreiðslur og uppgreiðslu á þessum flokki fyrir helgina. Þá megi einnig nefna að Reykjanesbær greiddi upp erlent lán til Depfa bankann upp á 800 milljónir króna. „Eins og við höfum bent á þá er það nokkuð athyglisvert að lækkun á gengi krónunnar eigi sér stað á þessum árstíma, en á sama tíma í fyrra var gengi krónunnar að hækka, og sú þróun hélt áfram út októbermánuð," segir í Morgunkorni greiningarinnar. „Það sem kann að hafa áhrif á þróunina undanfarið er útflæði tengt vaxtagreiðslum og uppgreiðsla erlendra lána. Þannig var ríkisbréfaflokkurinn RIKB12 á gjalddaga sl. föstudag en sá flokkur var að mestu leyti í eigu erlendra aðila. Ætla má að vaxtagreiðslur til útlendinga vegna RIKB12 hafi numið u.þ.b. 1,6 milljörðum kr., en þeim er heimilt að kaupa gjaldeyri fyrir slíkar greiðslur undir núverandi gjaldeyrisreglum. Annað sem má nefna er að Reykjanesbær tilkynnti í gær að í kjölfar á sölu bæjarins á skuldabréfi sem bærinn fékk við sölu HS orku á sínum tíma yrði greitt upp erlent lán við Depfa bankann upp á 800 milljónir kr."
Mest lesið Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Atvinnulíf Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Atvinnulíf Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu Viðskipti innlent Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Atvinnulíf „Beindu skammbyssu að höfðinu á mér og sögðu: I will kill you“ Atvinnulíf Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Viðskipti innlent Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Ríteil Kids hættir rekstri Viðskipti innlent Markaðurinn tók tíðindunum vel Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Vaxtahækkun í maí blasi við Sjá meira