Íslensku unglingarnir fara vel af stað í Finnlandi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. júní 2012 07:30
Birgir Björn Magnússon úr Keili er í fimmta sæti í flokki drengja 16 ára og yngri að loknum fyrsta hring á Alþjóðlega finnska meistaramóti unglinga sem fram fer í Vierumäki í Finnlandi. Birgir Björn lék hringinn í gær á 74 höggum eða tveimur höggum yfir pari. Gísli Sveinbergsson úr Keili er í 11. sæti í sama aldursflokki en hann lék hringinn í dag á 76 höggum eða fjórum höggum yfir pari. Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR er í 11. sæti í flokki telpna 16 ára og yngri. Hún lék á 81 höggi í dag eða níu höggum yfir pari. Í strákaflokki 14 ára og yngri eru þeir Henning Darri Þórðarson úr Keili og Fannar Þór Steingrímsson úr GHG meðal keppenda. Henning er í 10. sæti eftir að hafa leikið fyrsta hringinn á 79 höggum. Fannar Þór er í 14. sæti eftir að hafa leikið á 80 höggum. Hægt er að fylgjast með stöðunni í mótinu hér.
Golf Mest lesið Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Körfubolti Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Forseti FIFA vill fá Rússland inn aftur: „Bannið hefur skapað meiri gremju og hatur.“ Fótbolti Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Körfubolti Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Enski boltinn Féll á lyfjaprófi rétt fyrir Ólympíuleika í heimalandinu Sport Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Fótbolti Dagskráin í dag: Undanúrslit deildabikarsins og Lokasóknin hitar upp fyrir Ofurskálina Sport Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Handbolti Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Fleiri fréttir LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira