Þrjár nauðganir, tvær alvarlegar líkamsárásir og aldrei fleiri fíkniefnamál 6. ágúst 2012 13:58 Frá Vestmannaeyjum í gærdag. mynd/óskar p. friðriksson
Þrjár nauðganir eru til rannsóknar hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum eftir Þjóðhátíðina sem lauk í gærkvöldi. Konurnar sem hafa kært kynferðisbrotin eru 17 ára, 18 ára og 27 ára. Nauðganirnar áttu sér allar stað inni í Herjólfsdal. Aldrei hafa fleiri fíkniefnamál komið upp á Þjóðhátíð og tvær alvarlegar líkamsárásarkærur liggja á borði lögreglu eftir helgina. Á laugardagsmorgun kærði átján ára gömul stúlka nauðgun og var hún flutt á neyðarmóttöku fórnarlamba nauðgana í Reykjavík strax í kjölfarið. Tuttugu og tveggja ára gamall karlmaður handtekinn síðar um kvöldið. Honum var svo sleppt í gær þar sem lögregla taldi það ekki þjóna almannahagsmunum að hafa hann í haldi. Hann neitaði sök. Á miðnætti í gær kærði önnur stúlka nauðgun og önnur í morgun. Stúlkurnar eru 17 ára og 27 ára gamlar. Þær voru fluttar á neyðarmóttöku nauðgana í Vestmannaeyjum og í dag verða þær fluttar til Reykjavíkur á neyðarmótökuna. Þær gátu gefið lýsingu á mönnunum sem grunaðir eru um verknaðinn og er þeirra leitað. Nánari upplýsingar fást ekki hjá lögreglu þar sem rannsóknin er á viðkvæmu stigi. Í fyrra var tilkynnt um sex nauðganir á Þjóðhátíð og var einn maður dæmdur í fimm ára fangelsi vetur fyrir eina þeirra. Þá komu upp 52 fíkniefnamál miðað við 37 í fyrra og 32 árið áður. Jóhannes Ólafsson, yfirlögregluþjónn í Eyjum, segir að í flestum málanna sé um svokallaða neysluskammta að ræða, en aðallega eru það amfetamín, kókaín, maríjuna og ofskynjunarsveppir sem lögregla hefur gert upptækt. Átta líkamsárásarmál hafa verið kærð til lögreglu, þar af tvö alvarleg. Í nótt var maður kýldur þannig að hann nefbrotnaði og tvær tennur brotnuðu og þá var annar maður sem réðist á fyrrverandi kærustu sína.
Mest lesið Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Innlent Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Erlent Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Innlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Játaði nokkrum ákæruliðum en neitaði nauðgununum Erlent Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Erlent Fleiri fréttir Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Sjá meira