Fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði áhyggjuefni Þorbjörn Þórðarson skrifar 6. ágúst 2012 18:46
Fjöldi þeirra sem hefur þegið bætur í 12 mánuði eða lengur er áhyggjuefni að mati forstjóra Vinnumálastofnunar. Þá er ekki útilokað að atvinnuleysið aukist aftur í haust þegar tímabundnum aðgerðurm stofnunarinnar lýkur en atvinnuleysi mælist nú 5,2 prósent. Hagstofan birti fyrir helgi nýja vinnumarkaðsrannsókn sem gerð var vegna júnímánðar. Atvinnuleysi mælist 5,2 prósent og er það 0,4 prósentustigum frá tölum sem Vinnumálastofnun hafði áður birt fyrir sama tímabil. Hér sést svo lækkun atvinnuleysis undanfarna tólf mánuði. Gissur Pétursson segir tölurnar í takti við það sem búist var við. „Atvinnuleysið hefur gengið hratt niður yfir sumarmánuðina en það er rétt að minna á að það er dálítið stór hópur fólks sem er í svokölluðum vinnumarkaðsúrræðum á okkar vegum. Þetta fólk er á styrk frá atvinnuleysistryggingarkerfinu en er engu að síður í vinnu og mælast þess vegna ekki með í þessari mælingu." Má þá búast við að atvinnuleysi aukist á ný í lok sumars? „Við vonum auðvitað að atvinnulífið sé að taka við sér þannig að það sé eftirspurn sem var fyrir tímabundin störf muni aukast og halda áfram og því vonandi að þetta fólk fái fasta vinnu." Þrátt fyrir að atvinnuleysi hafi minnkað er enn stór hluti sem hefur glímt við langtímaatvinnuleysi, eða fimmtungur allra atvinnulausra. Langtímaatvinnuleysi er hugtak sem notað yfir þá sem hafa verið án vinnu í 12 mánuði eða lengur. Þeir voru um mitt þetta ár 2.800 eða 21 prósent allra atvinnulausra. Langflestir þeirra eru á höfuborgarsvæðinu og Suðurnesjum þar sem atvinnuleysi er mest. Hvaða fólk er þetta? „Það vill gerast að hópur sitji eftir og fái ekki störf við hæfi. Og þarna erum við að tala um greinar sem urðu hart úti í hruninu. Mannvirkjagreinar, ýmiss konar flutningastarfsemi og fleira. Útlendingar eru þarna í stórum hópum og þetta er auðvitað áhyggjuefni," segir Gissur Pétursson. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Innlent Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Erlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira