Innlent

Stúlka skölluð í andlitið

Stúlka var flutt á slysadeild skömmu fyrir klukkan þrjú í nótt en óprúttinn aðili virðist hafa skallað hana í andlitið á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er gerandinn ófundinn. Þá voru sex ökumenn teknir í nótt grunaðir um ölvunarakstur.

Tveir voru svo stöðvaðir grunaðir um að aka undir áhrifum fíkniefna. Að sögn lögreglu var mikið um hávaðaútköll í heimahúsum í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×