Kirkjan á inni tvo milljarða 9. maí 2012 08:00 Niðurskurður hefur bitnað harkalega á söfnuðum landsins og hafa margir þurft að hætta æskulýðs- og kórastarfi vegna fjárskorts. Fréttablaðið/GVA
Mistök voru gerð í fjárúthlutunum til þjóðkirkjunnar. Engar verðbætur voru greiddar með sóknargjöldum eftir hrun. Innanríkisráðherra sagði á fundi að ríkið muni leiðrétta mistökin. Söfnuðir stefna í gjaldþrot. Verðbætur hafa hvorki verið greiddar til safnaða þjóðkirkjunnar né annarra trúfélaga frá bankahruni. Söfnuðir þjóðkirkjunnar eiga inni um tvo milljarða króna hjá ríkinu vegna uppreiknaðra verðbóta, samkvæmt niðurstöðum nefndar innanríkisráðuneytisins. Haft eftir Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra á fundi með nefndinni sem meta átti áhrif niðurskurðar til kirkjunnar að mistök hafi verið gerð og ríkið muni leita leiða til að rétta við fjárhag kirkjunnar. „Ráðherra sagði að augljóst væri að lög hefðu verið brotin á kirkjunni,“ segir Gísli Jónasson, nefndarmaður og prófastur í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Hann hefur eftir Ögmundi að niðurstaða skoðunar hafi leitt í ljós að jafnræðis hafi ekki verið gætt í niðurskurðinum. Í skýrslu nefndarinnar kemur fram að söfnuðir þjóðkirkjunnar hafi þurft að taka á sig um 25 prósenta skerðingu umfram aðrar stofnanir eftir hrunið og samkvæmt útreikningum sé sú upphæð komin upp í rúma tvo milljarða króna. „Þetta eru engir smáaurar,“ segir Gísli. „En ráðherra sagði að þetta yrði leiðrétt, það er bara spurning hversu langan tíma það tekur.“ Kirkjan á að fá greiddar verðbætur fyrir sóknargjöldin sem ríkið innheimtir ár hvert fyrir hana, eins og fyrir öll trúfélög landsins. Framlagið til kirkjunnar var tímabundið skorið niður svipað og til annarra stofnana, en sóknargjaldið lenti í „sérmeðferð“, útskýrir Gísli. „Ef um hefði verið að ræða ríkisspítala, hefði vísitöluhækkun ársins á undan fyrst verið uppreiknuð, en ekki krónutala þessa árs,“ útskýrir Gísli. „Þetta 25 prósenta gat sýnir í raun og veru hver verðbólgan var á þessu tímabili. Og að kirkjunum sé ætlað að reka sig fyrir þetta mikið lægri upphæð en allir aðrir.“ Í skýrslu nefndarinnar segir að grunnstoðir í starfsemi safnaða þjóðkirkjunnar séu að hruni komnar vegna fjárhagsvanda. Ljóst sé að margir þeirra stefni í gjaldþrot. Í mörgum sóknum hafi niðurskurður bitnað á æskulýðs- og kórastarfi og byggingar séu margar hverjar að grotna niður. Halldóra Þorvarðardóttir, prófastur í Suðurprófastsdæmi og annar nefndarmaður, tekur undir orð Gísla og segir ráðherra hafa undirstrikað að bætt yrði fyrir mistökin. „Hann sagði að þarna hefðu mjög greinilega orðið mistök í hvernig skorið var niður gagnvart þjóðkirkjunni,“ segir Halldóra. „Það þurfi að bæta, en það geti tekið tíma.“ Ekki náðist í Ögmund Jónasson innanríkisráðherra í gær. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Sjá meira