Innlent

Kirkjan á inni tvo milljarða

Niðurskurður hefur bitnað harkalega á söfnuðum landsins og hafa margir þurft að hætta æskulýðs- og kórastarfi vegna fjárskorts.
Niðurskurður hefur bitnað harkalega á söfnuðum landsins og hafa margir þurft að hætta æskulýðs- og kórastarfi vegna fjárskorts. Fréttablaðið/GVA
Mistök voru gerð í fjárúthlutunum til þjóðkirkjunnar. Engar verðbætur voru greiddar með sóknargjöldum eftir hrun. Innanríkisráðherra sagði á fundi að ríkið muni leiðrétta mistökin. Söfnuðir stefna í gjaldþrot.

Verðbætur hafa hvorki verið greiddar til safnaða þjóðkirkjunnar né annarra trúfélaga frá bankahruni. Söfnuðir þjóðkirkjunnar eiga inni um tvo milljarða króna hjá ríkinu vegna uppreiknaðra verðbóta, samkvæmt niðurstöðum nefndar innanríkisráðuneytisins.

Haft eftir Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra á fundi með nefndinni sem meta átti áhrif niðurskurðar til kirkjunnar að mistök hafi verið gerð og ríkið muni leita leiða til að rétta við fjárhag kirkjunnar.

„Ráðherra sagði að augljóst væri að lög hefðu verið brotin á kirkjunni,“ segir Gísli Jónasson, nefndarmaður og prófastur í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Hann hefur eftir Ögmundi að niðurstaða skoðunar hafi leitt í ljós að jafnræðis hafi ekki verið gætt í niðurskurðinum.

Í skýrslu nefndarinnar kemur fram að söfnuðir þjóðkirkjunnar hafi þurft að taka á sig um 25 prósenta skerðingu umfram aðrar stofnanir eftir hrunið og samkvæmt útreikningum sé sú upphæð komin upp í rúma tvo milljarða króna.

„Þetta eru engir smáaurar,“ segir Gísli. „En ráðherra sagði að þetta yrði leiðrétt, það er bara spurning hversu langan tíma það tekur.“

Kirkjan á að fá greiddar verðbætur fyrir sóknargjöldin sem ríkið innheimtir ár hvert fyrir hana, eins og fyrir öll trúfélög landsins.

Framlagið til kirkjunnar var tímabundið skorið niður svipað og til annarra stofnana, en sóknargjaldið lenti í „sérmeðferð“, útskýrir Gísli.

„Ef um hefði verið að ræða ríkisspítala, hefði vísitöluhækkun ársins á undan fyrst verið uppreiknuð, en ekki krónutala þessa árs,“ útskýrir Gísli. „Þetta 25 prósenta gat sýnir í raun og veru hver verðbólgan var á þessu tímabili. Og að kirkjunum sé ætlað að reka sig fyrir þetta mikið lægri upphæð en allir aðrir.“

Í skýrslu nefndarinnar segir að grunnstoðir í starfsemi safnaða þjóðkirkjunnar séu að hruni komnar vegna fjárhagsvanda.

Ljóst sé að margir þeirra stefni í gjaldþrot. Í mörgum sóknum hafi niðurskurður bitnað á æskulýðs- og kórastarfi og byggingar séu margar hverjar að grotna niður.

Halldóra Þorvarðardóttir, prófastur í Suðurprófastsdæmi og annar nefndarmaður, tekur undir orð Gísla og segir ráðherra hafa undirstrikað að bætt yrði fyrir mistökin.

„Hann sagði að þarna hefðu mjög greinilega orðið mistök í hvernig skorið var niður gagnvart þjóðkirkjunni,“ segir Halldóra. „Það þurfi að bæta, en það geti tekið tíma.“

Ekki náðist í Ögmund Jónasson innanríkisráðherra í gær.

sunna@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×