Hversu Veiga(r)mikill verður hann? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. nóvember 2012 07:30 14 mörk í 30 leikjum. Veigar Páll Gunnarsson sést hér á æfingu með KR fyrir tíu árum en hann var allt í öllu í Íslandsmeistaratitlum KR árin 2002 og 2003. MYnd/E.Ól
Stjörnumenn endurheimtu son sinn á dögunum þegar Veigar Páll Gunnarsson skrifaði undir samning við félagið og er kominn heim eftir tólf ára fjarveru hjá KR og í atvinnumennsku. Fréttablaðið veltir fyrir sér mikilvægi þess að hafa mann eins og Veigar Pál. Veigar Páll Gunnarsson gekk frá fjögurra ára samningi við Stjörnuna á þriðjudagskvöldið en þess 32 ára sóknarmaður mun næsta sumar spila sitt fyrsta tímabil í íslensku deildinni í tíu ár eða síðan hann lék með KR-ingum sumarið 2003. Stjörnuliðið gerði tíu jafntefli í Pepsi-deildinni síðasta sumar og vantaði oft tilfinnanlega mann til að gera út um leikina. Framganga Veigars fyrir tíu árum ætti að auka væntingarnar í Garðabænum um að félagið sé nú komið með manninn sem getur klárað þessa jöfnu leiki. Það væri reyndar hægt að halda því fram að tímabilið 2003 hafi verið eitt af þeim tímabilum þar sem einn leikmaður öðrum fremur sá um hvar Íslandsbikarinn endaði. Veigar Páll spilaði þá 13 af 18 leikjum Vesturbæjarliðsins og KR náði í 91 prósent stiga sinna í þeim. KR-liðið vann níu deildarleiki þetta sumar. Veigar Páll skoraði eða lagði upp sigurmark í fimm þeirra, skoraði tvö mörk í þeim sjötta og lagði upp þrjú mörk í sjöunda leiknum. Veigar Páll var alls með 6 mörk og 7 stoðsendingar í umræddum níu sigurleikjum KR auk þess að eitt mark til viðbótar var skorað þegar fylgt var eftir skoti hans. Gengi KR-liðsins án Veigars Páls var líka kapítuli út af fyrir sig. KR-liðið tapaði nefnilega 4 af 5 leikjum án hans og markatala liðsins í þeim leikjum var 5-15. Það er líka athyglisvert að skoða gengi KR-inga fyrir og eftir komu Veigars Páls í Vesturbæinn. KR-liðið náði ekki að vera í efri hluta deildarinnar árið fyrir komu hans sem og tvö fyrstu árin eftir að hann fór í atvinnumennsku til Noregs. Bæði árin hans í Vesturbænum kom hins vegar Íslandsmeistarabikarinn í hús. Veigar Páll spilaði síðast með Stjörnunni í Landssímadeildinni sumarið 2000 þegar hann var aðeins 18 ára gamall. Veigar Páll kom þar með beinum hætti að 10 af 18 mörkum liðsins en gat ekki komið í veg fyrir að félagið félli úr deildinni. Veigar Páll hittir þó fyrir Garðbæing sem hann spilaði með í framlínu KR sumarið 2003. Garðar Jóhannsson skoraði 3 deildarmörk fyrir KR það sumar, þar af eitt eftir stoðsendingu frá Veigari. Garðar hefur skorað 23 mörk í Pepsi-deildinni undanfarin tvö sumur og væntanleg þjónusta frá Veigari Páli ætti að gefa honum nóg af tækifærum til að bæta verulega við þá tölu á komandi tímabili. Sóknarleikur Garðbæinga ætti að vera í fínum málum en nú þarf Logi Ólafsson væntanlega að fara að einbeita sér að því að þétta varnarleikinn sem hefur verið að margra mati Akkilesarhæll liðsins undanfarin ár.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira