Innlent

Veiðar dótturfyrirtækja vottaðar

Rúmlega 14 þúsund vörur úr sjávarafurðum eru merktar með MSC-umhverfismerkinu.
Rúmlega 14 þúsund vörur úr sjávarafurðum eru merktar með MSC-umhverfismerkinu.
Dótturfyrirtæki Samherja í Englandi (UK Fisheries Ltd) og í Þýskalandi (DFFU) hafa fengið vottun samkvæmt MSC-staðlinum um sjálfbærar og umhverfisvænar veiðar á þorski, ýsu og ufsa, að því er segir í fréttatilkynningu frá MSC.

Samherji á Íslandi er jafnframt í vottunarferli vegna veiða á þorski, ýsu og norsk-íslensku síldinni.

MSC (Marine Stewardship Council) er alþjóðleg sjálfseignarstofnun sem er rekin án gróðasjónarmiða. MSC hefur þróað staðla fyrir sjálfbærar fiskveiðar og rekjanleika. Mat samkvæmt stöðlum MSC er framkvæmt af óháðri faggiltri vottunarstofu, að því er Gísli Gíslason, ráðgjafi sjálfseignarstofnunarinnar á Íslandi, greinir frá.

„Nú eru um tíu prósent af heimsveiðunum vottuð eða í vottunarferli samkvæmt staðli MSC. Rúmlega 14 þúsund vörur úr sjávarafurðum eru merktar með MSC-umhverfismerkinu og eru þær seldar í um 80 löndum,“ segir Gísli.

-ibs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×