Innlent

Líkamsárás í Kópavogi

Karlmaður réðst á konu í Kópavogi á tólfta tímanum í gærkvöldi og veitti henni talsverða áverka í andliti.

Hún var flutt á slysadeild, en maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu. Ekki er nánar greint frá vettvangi eða tildrögum málsins, í tilkynningu frá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×