Mun íhuga formannsframboð með opnum huga Þorbjörn Þórðarson skrifar 29. júlí 2012 20:35
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður, útilokar ekki framboð til formanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins í byrjun næsta árs ef svo fer að Jóhanna Sigurðardóttir ákveður að hætta. Jóhanna Sigurðardóttir hefur enn ekkert gefið út um það opinberlega hvort hún muni áfram gefa kost á sér sem formaður Samfylkingarinnar eftir næsta landsfund flokksins sem verður í byrjun næsta árs. Þegar eru hins vegar hafnar umræður meðal almennra flokksmanna og í opinberri umræðu um hver muni hugsanlega taka við af henni ef hún ákveður að stíga til hliðar. Fyrr í þessum mánuði gerði fréttastofa könnun meðal þingmanna og annars áhrifafólks innan Samfylkingarinnar þar sem fólk var beðið að nefna hvern það teldi líklegastan til að gefa kost á sér í embætti formanns. Nöfn þeirra Árna Páls Árnasonar, Guðbjarts Hannessonar og Katrínar Júlíusdóttur voru oftast nefnd. En það eru fleiri sem koma til greina. Margir flokksmenn hafa hvatt Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur þingmann að gefa kost á sér, ef svo fer að kosið verði um embætti formanns á landsfundinum. „Fólk hefur rætt við mig um möguleika á því að ég fari í forystusveit Samfylkingarinnar. Ég hef svarað því til að ég muni íhuga það með opnum huga. En ég tel að Jóhanna Sigurðardóttir sem er formaður flokksins, nýtur mikilla vinsælda og hefur ekkert gefið það upp ennþá um það hvað hún hyggist gera. En komi til forystuskipta skiptir miklu máli að flokksfólk ákveði sín á milli hvers konar forysta sé farsælust fyrir flokkinn til lengri tíma litið," segir Sigríður.Og ef þú færð áskoranir þess efnis að gefa kost á þér muntu íhuga það alvarlega? „Já þá mun ég skoða það með opnum huga," segir hún.
Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Konur í Framsókn sjá að sér Innlent Fleiri fréttir Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Sorglegt að vera einungis tala á blaði Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Sjá meira