Alcatraz sundgarparnir óttast ekki hákarla BBI skrifar 28. júlí 2012 15:07 Árni og Benedikt.
Íslensku þrímenningarnir sem ætla að synda yfir San Francisco-flóa voru rétt í þessu að stíga um borð í skipið og leggja af stað. Þeir eru í fjölmennum hóp sundkappa en segjast vera þeir einu sem stefni á að synda á adamsklæðunum einum saman, aðrir ætli að synda í blautbúning. Þeir Benedikt Hjartarson, Árni Þór Árnason og Jón Sigurðsson taka í dag þátt í því að endursviðsetja einn frægasta fangelsisflótta sögunnar með því að synda frá Alcatraz fangelsinu yfir San Francisco-flóa. Sundið er einir sjö kílómetrar í heild. Fréttastofa náði tali af Benedikt stuttu áður en hann lagði af stað í sundið. „Sko í okkar augum er sjósund ekki í búning," segir Benedikt, en hópurinn sem ætlar að synda í dag telur yfir þúsund manns og Benedikt sér ekki betur en flestir ætli að vera í blautbúning á leiðinni. Sjórinn er 14°C. Inntur eftir því hvort hann óttist hákarla neitar Benedikt því. „Við vorum reyndar að synda hérna í gær meðfram bryggjunni og hittum mann sem sagðist vera nýbúinn að sjá hákarla og við ættum að fara varlega," segir hann. Hins vegar telur Benedikt að sundið í dag verði öruggt enda sé hópurinn stór og bátar með í för. Sundið er árviss viðburður og félagarnir ákváðu að skella sér þetta árið þar sem einn í þeirra hópi varð sextugur á árinu og langaði að gera eitthvað skemmtilegt.
Tengdar fréttir Ætla að endurtaka frægasta fangelsisflótta sögunnar Þrír íslenskir sundkappar ætla að endurtaka einn frægasta fangelsisflótta sögunnar í næstu viku og synda yfir San Francisco-flóa frá Alcatraz fangelsinu. Sundkapparnir búast við köldu vatni, hákörlum og sterkum hafstraumum. 24. júlí 2012 20:03 Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Ætla að endurtaka frægasta fangelsisflótta sögunnar Þrír íslenskir sundkappar ætla að endurtaka einn frægasta fangelsisflótta sögunnar í næstu viku og synda yfir San Francisco-flóa frá Alcatraz fangelsinu. Sundkapparnir búast við köldu vatni, hákörlum og sterkum hafstraumum. 24. júlí 2012 20:03