Jórunn lærir móðurmálið með undraverðum árangri Hugrún Halldórsdóttir skrifar 31. júlí 2012 19:32
Þrátt fyrir að hafa byrjað að læra íslensku fyrir þremur vikum hefur Jórunn Hjaltadóttir, átján ára gömul stúlka búsett í Noregi, náð ótrúlega góðum tökum á málinu. En framfarir hennar eru ekki einsdæmi. Jórunn hefur á þessum tíma lært íslensku í átta tíma á dag og var að sjálfsögðu að læra þegar við hittum hana um hádegisbil. „Pabbi minn er frá Íslandi og mamma mín er frá Noregi," segir Jórunn. Hefur íslenska verið töluð heima hjá þér? „Nei, aldrei. Ég vil tala íslensku, mér finnst það mjög fallegt tungumál." Jórunn situr námskeið tungumálaskólans EU ásamt fjörutíu öðrum krökkum sem búsettir eru víðsvegar um heiminn, en nemendafjöldinn hefur fjórfaldast frá því í fyrra. Flestir eru tvítyngdir en sumir tala þrjú eða jafnvel fjögur tungumál. „Foreldrar eru bara mjög ánægðir," segir Gígja Svavarsdóttir, skólastjóri Tungumálaskóla EU. „Það sem gerist alltaf er það að þar sem þú býrð, börnin vilja vera eins. Þannig að, að tala íslensku í útlöndum passar ekki þannig að börn fara oft á svara tungumálum á því tungumáli sem er talað en hérna, þau hafa bara rokið af stað." Og kennslan er einstaklega lífleg. „Ef það er erfitt orð þá talar hún um orðið á íslensku, við erum að leika mikið líka, spila spil, fara í göngutúr og í bæinn." Ætlarðu að halda íslenskunni við þegar þú ferð út og tala íslensku við pabba þinn? „Já, ég held það," segir Jórunn. „Pabbi kemur á fimmtudaginn og þá ætla ég að tala íslensku við hann allan tímann." „Þetta er svo gaman, þau eru svo ánægð með þetta," segir Gígja. „Þau eru stolt af því að vera Íslendingar og tala sína íslensku þó þau búi ekki hérna og það er auðvitað mjög mikilvægt."
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira