Fjárveitingar duga ekki fyrir viðhaldi 7. júní 2012 08:00 Einar Magnús Magnússon
Bjarni Stefánsson hjá Vegagerðinni segir fjárveitingar í endurnýjun vegakerfisins ekki nægilegar til að sinna brýnum verkefnum. Vegagerðin eyðir rúmlega 600 milljónum í endurnýjun vega. Reykjavíkurborg eyðir 300 milljónum í götur. „Á heildina litið eru göturnar í verra ástandi en í fyrra,“ segir Bjarni Stefánsson, deildarstjóri viðhalds og þjónustu hjá Vegagerðinni. „Fjármagnið er hins vegar ekki nægjanlegt til að gera það sem þarf að gera.“ Hann segir fjármagnið sem eyrnamerkt hafi verið endurbótum á vegakerfinu ekki meira en undanfarin ár þrátt fyrir verra ástand. „Það má færa rök fyrir því að þegar yfirborð vega er slitið eins og nú þá geti það verið mun hættulegra en best gæti verið,“ segir Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi Umferðastofu. „Alveg eins og bílar þurfa að vera í lagi og standast skoðun þá þurfa vegir að gera það líka. Við ætlumst til þess að vegfarendur séu á góðum og öruggum bílum og við verðum að gera kröfur um að vegir séu það einnig.“ Einar Magnús segir umferðarslys og umferðaróhöpp samanlagt kosta samfélagið um það bil 30 til 40 milljarða króna á ári. „Ef að örlítið hlutfall óhappa má rekja til slæms ástands vega má sjá að það borgar sig að halda þeim vel við.“ Gert er ráð fyrir að 80.200 fermetrar af götum borgarinnar verði malbikaðir í sumar. Það er Reykjavíkurborg sem hefur umsjón með viðhaldi á götum borgarinnar. Undantekning er þó gerð á stofnæðum í borginni. Vegagerðin hefur umsjón með þeim enda um þjóðvegi að ræða. Vegagerðin eyðir rúmlega 600 milljónum króna á suðvesturhorninu í endurnýjun vega. Um er að ræða endurnýjun slitlags á stofnæðum á höfuðborgarsvæðinu, á Vesturlandsvegi að Hvalfjarðargöngum, á Akrafjallsvegi frá göngum að Akranesbæ og á þjóðvegum á Suðurnesjum. Fjármagninu verður einnig varið í endurnýjun á þjóðvegi eitt frá Ölvisholtsafleggjara að Þjórsárbrú. Samkvæmt upplýsingum frá umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar er ekki hægt að tímasetja einstakt verkefni vegna þess hversu háð veðri og vindum malbikunin er. Áætluð verklok eru 15. september. Framkvæmt verður á fjölmörgum stöðum í borginni. Í þá rúmlega 80 þúsund fermetra sem malbikaðir verða á vegum borgarinnar fara um 8.500 tonn af malbiki. Rúmlega 53 þúsund fermetrar af gömlu malbiki verða fræstir. Fjárveiting borgarinnar í endurnýjun malbiksslitlaga er 300 milljónir króna. Borgin mun þó verja samanlagt 2,3 milljörðum króna í gatnaframkvæmdir. Stærsti einstaki liðurinn er umhverfis- og aðgengismál, sem rúmar meðal annars göngu- og hjólreiðastíga. birgirh@frettabladid.is
Mest lesið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Fleiri fréttir Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Sjá meira