Fjögurra ára nauðgunardómur staðfestur 7. júní 2012 17:45 Mennirnir nauðguðu konunni við Reykjavíkurflugvöll.
Hæstiréttur staðfesti í dag fjögurra ára fangelsisdóm yfir tveimur erlendum karlmönnum fyrir hrottalega nauðgun við Reykjavíkurflugvöll í október á síðasta ári. Mönnum er gert að greiða fórnarlambinu 1200 þúsund krónur í miskabætur. Mennirnir, Arkadiusz Zdislaw Pawlak og Rafal Grajewski, voru ákærðir fyrir að hafa að morgni sunnudagsins 16. október á síðasta ári, tekið konu upp í bifreið við Laugaveg í Reykjavík og ekið með hana að Reykjavíkurflugvelli. Og þar í aftursæti bifreiðarinnar þröngvað henni með ofbeldi til samræðis. Mennirnir játuðu við yfirheyrslur hjá lögreglu að hafa tekið konuna upp í bifreiðina og ekið með hana að Reykjavíkurflugvelli þar sem kynferðisleg samskipti hafi átt sér stað. Framburður þeirra um hvað gerðist nákvæmlega var þó ekki samhljóða, en hvorugur kannaðist við að hafa þvingað konuna til kynferðismaka. Í yfirheyrslum hjá lögreglu var framburður konunnar aftur á móti greinargóður og skýr. Hún sagði mennina hafa boðist til að aka sér í verslun sem hún ætlaði í og hafi hún þegið það. Hún hafi reynt að telja mönnunum trú um að hún væri smituð af HIV í þeim tilgangi að fá þá til að hætta ofbeldinu. Þá hafi hún einnig öskrað en þegar hún hafi gert það hafi ökumaðurinn tekið hana hálstaki og lamið hana í andlitið. Mennirnir hafa setið í gæsluvarðhaldi frá því að þeir voru handteknir í október. Þeir þurfa að sitja í fangelsi í fjögur ár og greiða konunni 1,2 milljónir í miskabætur.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sjá meira