Innlent

Segir mótmælendur á fullu kaupi að klappa fyrir LÍÚ

Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
„Nú hafa útgerðarmenn siglt öllum sínum flota í land og stefnt öllu sínu starfsfólki á fullu kaupi til að standa þarna og hylla sig á Austurvelli," segir Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. Hún var ásamt Einari K. Guðfinnssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, gestur í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

Ólína sagði að það hefði ekki heyrst mikið í ræðumönnunum í dag. „Hér er ekki bara almenningur sem er ekki á launum við að standa þarna og klappa fyrir LÍÚ, heldur almenningur sem stendur þarna í þeirri von um að rödd þeirra heyrist líka," sagði Ólína. „Þessum hópi hefur ekki verið boðið til viðræðna, hvorki við stjórnvöld né aðra, til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri."

Einar K. Guðfinnsson brást ókvæða við þeim orðum Ólínu að mótmælendur væru þarna á fullum launum að klappa fyrir LÍÚ. „Ég held Ólína að við ættum að reyna forðast svona málflutning. Við skulum ekki tala niður til fólks eins og þú ert að gera."

Hægt er að hlusta á viðtalið hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×