Ætlar ekki að láta undan þrýstingi útgerðarmanna Höskuldur Kári Schram skrifar 7. júní 2012 19:38
Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra, segir Alþingi muni ekki láta undan þrýstingi útgerðarmanna í kvótamálinu. Meirihluti þingmanna styður frumvarp um hækkun veiðigjalda. Mótmæli útgerðarmanna voru rædd í fyrirspurnartíma á alþingi í morgun. Einar K. Guðfinnsson, þingmaður sjálstæðisflokks, sagði að ríkisstjórninni hafi mistekist að skapa sátt um breytingar á kvótakerfinu. „Það hlýtur að blasa við hæstvirtum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, eins og það blasir við þjóðinni, að tilraun ríkisstjórnarinnar til þess að leiða þessi mál til lykta, og til þess að draga úr þessum deilum hefur greinilega ekki tekist. Og þess vegna erum við í þessari stöðu," sagði Einar á Alþingi í dag. Steingrímur sagði að það væri Alþingis en ekki útgerðarmanna að ákveða framhald málsins. „Niðurstöður í löggjafarstörfum eiga ekki að ráðast af þrýstingsaðgerðum fjársterkra sérhagsmunahópa. Ég segi fyrir mig persónulega, hef sagt það áður opinberlega og get endurtekið það hér, ég mun reyna vanda mig við að láta stórútgerðamenn ekki gjalda þessara aðgerða þó mér þykir þær ekki viðeigandi. En ég mun sannanlega ekki láta þá njóta þeirra heldur," sagði Steingrímur á Alþingi í dag. Meirihluti alþingismanna styður frumvarp um hækkun veiðigjalda en þó eru sumir sem vilja ganga lengra. Allur þingflokkur samfylkingarinnar er fylgjandi málinu sem og ellefu þingmenn vinstri grænna. Guðmundur Steingrímsson styður einnig málið og þingmenn Hreyfingarinnar. Samanlagt eru þetta 35 þingmenn. Þingmenn Sjálfstæðisflokks eru á móti frumvarpinu sem og þingflokkur framsóknarmanna - eða tuttugu og fimm þingmenn. Afstaða þriggja þingmanna liggur ekki endanlega fyrir, það er Atla Gíslasonar, Lilju Mósesdóttur og Jóns Bjarnasonar. Hitt kvótafrumvarpið - sem snýr að breytingum á stjórn fiskveiða - er umdeildara en samkvæmt heimildum fréttastofu er ekki útilokað að því máli verði frestað fram á haust.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Sjá meira