Innlent

"Þú ert drekinn!"

Skafti og Ármann
Skafti og Ármann Samsett mynd
Skafti Þ. Halldórsson, deildarstjóri eldri deildar Álfhólsskóla í Kópavogi, skrifar opið bréf til Ármanns Kr. Ólafssonar, bæjarstjóra Kópavogs, í Fréttablaðið í dag. Tilefnið er leiðrétting á launum bæjarstjórans á dögunum.

Skafti vitnar í orð Ármanns í DV þar sem hann sagði að bærinn hafi sameinað skóla og hagrætt á ýmsan máta. „Með öðrum orðum sameining skólans míns fyrrverandi, Digranesskóla, og Hjallaskóla í Álfhólsskóla er réttlæting þess að þú eigir rétt á 23% launaleiðréttingu, svo að nú hefur þú eina og hálfa milljón í laun. Það vill svo til að ég vann að þessari sameiningu ásamt með öðru starfsfólki Álfhólsskóla. Ég varð aldrei var við viðveru þína í því ferli. Ég stóð aftur á móti í því streði og stend enn."

Skafti segir í bréfinu að hann sinni nú starfi sem áður fjórir stjórnendur gegndu. Hann fái sjaldan kaffitíma og borði oftast á hlaupum. Þegar hann tók við starfinu hafi laun hans hækkað um tvo launaflokka, um það bil 6%. „Ég næ samt engan veginn þriðjungi þinna launa. Þar vantar töluvert upp á," skrifar hann.

Og hann vill fá sömu launahækkun og Ármann þar sem hann hafi unnið fyrir henni - en ekki bæjarstjórinn.

„Ef þú treystir þér ekki til þess að láta mig fá launahækkunina þína eða koma fram með aðra og síður móðgandi réttlætingu á henni hvet ég til að þú kallir mig á þinn fund þegar þú ert lentur og segir við mig þessi fleygu orð: Þú ert drekinn!"

Hægt er að lesa grein Skafta hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×