Þurftu að bíða í flugvélinni í 40 stiga hita í þrjá tíma 14. júní 2012 12:19 Mynd tengist frétt ekki beint úr safni
Strandaglópur á vegum Icelandair í Denver segist hafa þurft að sitja í fjörutíu stiga hita í flugvélinn í þrjá tíma áður en honum var vísað frá borði vegna vélarbilunar. Hann telur sig heppinn að hafa fengið pláss á hótelinu sem fólkinu var vísað á. Þór Kristjánsson er búinn að vera í nokkurra daga skemmtiferð í Bandaríkjunum. Erindið var meðal annars að sækja barnabarnið hans sem hefur verið við nám í Texas. Ætlunin var að snúa heim í gær frá Denver með Icelandair. „Við vorum öll komin út í vél og látin bíða þar í þrjá klukkutíma í fjörutíu stiga hita. Á meðan sagði flugmaðurinn okkur tvisvar að það væri einhver leki í hjólastellinu og að þeir væru að leita að orsökum. Eftir þessa þrjá tíma segir hann að þetta sé meiri viðgerð en þeir héldu og að við verðum að fara frá borði, að við förum á hótel og það verði flogið á sama tíma deginum eftir," segir Þór. Hann segir að þeim hafi því næst verið vísað frá borði og fengið beiðnir til að fara á hótel frá starfsmönnum Lufthansa. Alls hafi þetta verið á annað hundrað manns, mestmegnis útlendingar. „Staðan er sú núna að við fengum beiðni á tveggja stjörnu hótel og allt liðið var sent með beiðni hingað. En það er fullt af fólki sem fékk ekki inni hérna einu sinni því það var allt orðið fullt. Það endaði með því að maður sá fólk hérna ráfandi um með töskur og reyna komast inn á önnur hótel, en þau vildu ekki beiðnirnar frá þessu fólki. Þetta var hálf fáránlegt allt saman." Þór er afar ósáttur við að enginn starfsmaður frá Icelandair hafi verið viðskiptavinunum innan handar í Denver. Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair er seinkunin vegna vélarbilunar. Áætluð koma til Keflavíkur er á sjöunda tímanum í fyrramálið.
Mest lesið Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Innlent Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent Flutti til Reykjavíkur í dag Innlent Féll í Jökulsárlón Innlent „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Innlent Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Innlent Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Drífa Snædal snýr aftur Innlent Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor Innlent Fleiri fréttir „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd „Það er ekkert sem tekur við og enginn sem ber ábyrgð“ Drífa Snædal snýr aftur Goddur jarðsunginn Tifandi tímasprengja, oddviti í beinni og breytt Reynisfjara Handtekin fyrir að beita opinberan starfsmann ofbeldi „Þörfin er gríðarleg“ Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Blíðan haft áhrif á gróður sem lætur þó ekki plata sig Reiknar með einu gosi í viðbót Flutti til Reykjavíkur í dag Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Réttað yfir manni sem er grunaður um að nauðga barni og konu sinni Saka stjórnendur Bifrastar um að hafa beitt nemendur þrýstingi Saka stjórnendur um að þrýsta á nemendur að styðja rektor Biðla enn til almennings sjö árum eftir hvarf Jóns Þrastar Þorsteinn fær áheyrn Hæstaréttar Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í borginni Stjórnarformaðurinn verður forstjóri Reykjalundar Íslenska ríkið ræður lobbýista í Washington Jarðskjálftahrinan við Eldey heldur áfram Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ Fjórir handteknir í tengslum við líkamsárásir „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Sjá meira