Íslenska Watergate verður vistvænt hús 13. nóvember 2012 06:00 Til stendur að gera gagngerar endurbætur á Höfðabakka 9 og búa til vistvæna skrifstofubyggingu sem hentar vel tæknifyrirtækjum og skyldri starfsemi. Fréttablaðið/Daníel
Norræna ráðherraráðið hefur blásið til samnorrænnar hönnunarkeppni þar sem markmiðið er að hanna vistvænar endurbætur á byggingum á Norðurlöndunum. Ein bygginganna er á Íslandi en fyrstu verðlaun eru 22,5 milljónir. Íslendingum stendur til boða þátttaka í samnorrænni hönnunarkeppni sem hverfist um að hanna vistvænar endurbætur á byggingum á Norðurlöndunum. Auglýst hefur verið eftir hönnun á fimm byggingum, þar á meðal á Höfðabakka 9 sem oft er kölluð Bogabyggingin eða Watergate. „Þetta er opin, þverfagleg samkeppni sem ekki bara arkitektar heldur allir geta tekið þátt í. Í boði er myndarlegt verðlaunafé sem Norræna ráðherranefndin útvegar og alþjóðleg dómnefnd mun velja verðlaunahafa,“ segir Guðmundur Tryggvi Sigurðsson, forstöðumaður eignaumsýslusviðs Fasteignafélagsins Reita, en Reitir eiga Höfðabakka 9. Guðmundur Tryggvi segir að Norræna ráðherranefndin hafi síðustu ár beitt sér fyrir þróun vistvænna bygginga á Norðurlöndum. „Með það fyrir augum hefur nefndin sett á fót verkáætlun í nokkrum skrefum. Einn hluti er þessi keppni,“ segir Guðmundur Tryggvi og bætir við að í keppninni sé einnig lögð áhersla á að draga fram sérnorræn einkenni bygginganna. Höfðabakki 9 er sjö hæða skrifstofuhús frá árinu 1980. Endurbóta er þörf á húsinu en markmið Fasteignafélagsins Reita er að búa til „vistvæna skrifstofugarða“ fyrir tæknifyrirtæki og skylda starfsemi. Að sögn Guðmundar Tryggva voru Reitir þegar byrjaðir að skipuleggja endurinnréttingu á húsinu, í samstarfi við Opin kerfi sem hafa haft aðstöðu í húsinu um árabil, þegar fyrirtækið var beðið um að leggja til byggingu í keppnina. „Okkar hugmyndir féllu mjög vel að keppninni. Fasteignafélagið Reitir og Opin kerfi urðu því fúslega við bóninni.“ Auk Höfðabakka 9 hefur verið auglýst eftir endurhönnun á byggingum í Stokkhólmi, Ósló, Ballerup í Danmörku og Tampere í Finnlandi. Skilafrestur á tillögum í keppnina er til 8. febrúar. Í kjölfarið verða fjórar tillögur fyrir hverja byggingu valdar og þróaðar áfram. Allar tuttugu tillögurnar verða verðlaunaðar og þá mun hönnunarteymið að baki þeirri tillögu sem að lokum verður valin best allra hljóta milljón norskra króna skattfrjálst í verðlaunafé, jafngildi 22,5 milljóna íslenskra króna. magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Veður Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjá meira