Stjórnarskrártillaga verður rædd á Alþingi á þriðjudag 16. nóvember 2012 08:00 Páll Þórhallsson kynnti í síðustu viku skýrslu sérfræðingahóps sem yfirfór lagatæknileg atriði stjórnarskrárdraga. Hópurinn benti á að heildstætt mat á áhrifum breytinganna skorti. Feneyjanefndinni er ætlað að vinna það. fréttablaðið/anton
Frumvarp um breytingar á stjórnarskrá var afgreidd úr nefnd í gær og verður til umræðu á þriðjudag. Stefnt að því að breytingar náist fyrir þinglok. Stjórnarandstaðan vill mat á áhrifum fyrir umræðurnar. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd afgreiddi frumvarp um breytta stjórnarskrá í gær. Málið verður tekið til umræðu á þriðjudag. Meirihlutinn leggur nú drög að því að senda frumvarpið til Feneyjanefndarinnar, þar sem það verði metið heildstætt. „Ég er að leggja drög að því í smáatriðum. Ég veit að þeir geta tekið við þessu, en smáatriðin eru ekki alveg ljós. Þeir geta tekið við þessu og gert þetta innan þeirra tímamarka sem við þurfum,“ segir Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Ólöf Nordal, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í nefndinni, segir óeðlilegt að málið fari í umræður á Alþingi áður en heildstætt mat hafi farið fram á áhrifum breytinga á stjórnarskrá. Sérfræðingahópur hafi bent á að slíkt mat vantaði. „Hér er um að ræða frumvarp sem kemur annars staðar frá og mér finnst eðlilegt að meirihlutinn láti þetta mat fara fram áður en hann leggur frumvarpið fram.“ Ólöf segir mikla vinnu eftir við málið, einnig eigi eftir að fara yfir þær athugasemdir sem aðrir sérfræðingar hafa gert. „Við verðum bara að vinna þetta mál. Menn verða bara að gefa sér tíma í það og við munum auðvitað kalla eftir því að það verði gert og þá inni í nefndinni,“ segir Ólöf. Valgerður er enn sannfærð um að unnt sé að ljúka málinu fyrir vorið, þó mikil vinnasé eftir. „Við þurfum að fá málið aftur inn í nefndina þannig að við getum hafist handa við að senda þetta inn í ráðuneytin hér til að athuga hvort þurfi einhver bráðabirgðaákvæði, svo eitthvað sé nefnt. Þá vinnu þarf að vinna og svo er hægt að hefja þá efnislegu umræðu sem menn hafa beðið eftir um leið og málið kemur aftur fyrir nefndina,“ segir Valgerður. „Þú getur líka verið með heildstætt mat og það getur tekið fimm ár og þá gerist aldrei neitt, af því að þú ert alltaf að meta eitthvað. Það virðist nú vera það sem íhaldsmennirnir, hvar í flokki sem þeir standa, eru í núna.“ kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Veður Fleiri fréttir Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Sjá meira