Innlent

Fiskikör á ferð og flugi

Myndin tengist ekki efni fréttarinnar beint.
Myndin tengist ekki efni fréttarinnar beint.
Lögreglunni á Suðurnesjum barst í gær tilkynning um að fiskikör hefðu fokið á bifreiðar og skemmt þær. Um var að ræða tvær bifreiðar, sem lagt hafði verið á bifreiðastæði við húsnæði Ísfélags Grindavíkur, og urðu þær fyrir körunum.

Önnur bifreiðin skemmdist verulega, en hin slapp betur. Ekki er vitað á vegum hvaða fyrirtækis fiskikörin eru. Málið er í rannsókn samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×