Íslendingar flæktir í stórt fíkniefnamál - Teygir anga sína til Danmerkur JHH skrifar 16. nóvember 2012 15:26 Mynd/danska lögreglan
Lagt var hald á verulegt magn af fíkniefnum við húsleitir í Kaupmannahöfn í Danmörku, en tveir menn hafa verið úrskurðaðir í fjögurra vikna gæsluvarðhald í þágu rannsóknarinnar, sem er unnin í samvinnu við lögregluliðin á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Á vef dönsku lögreglunnar kemur fram að efnið sem haldlagt var sé hálft kíló af kókaíni, og tæplega 41 þúsund e-pillur. Þá var lagt hald 26 þúsund dollara, sem samsvara yfir þremur milljónum króna. Mennirnir, Íslendingur á þrítugsaldri og Pólverji á fertugsaldri, búsettur hérlendis, voru handteknir í Kaupmannahöfn í gær, en báðir hafa áður komið við sögu hjá lögreglu. Hér heima var par handtekið og yfirheyrt vegna málsins, en maðurinn var handtekinn við heimkomu frá Kaupmannahöfn. Hann er íslenskur, rétt eins og konan, en bæði eru þau á þrítugsaldri. Maðurinn hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. Rannsókn málsins, sem snýr meðal annars að því hvort flytja hafi átt fíkniefnin til Íslands, hefur staðið yfir í nokkurn tíma og framkvæmdar hafa verið fjórar húsleitir hérlendis vegna þessa. Í þeim aðgerðum hefur verið lagt hald á fjármuni, en einnig stera, tæki og tól sem tengjast sölu og dreifingu fíkniefna og vopn. Við fyrrnefndar aðgerðir lögreglu voru notaðir fíkniefnaleitarhundar frá tollinum. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að frekari upplýsingar sé ekki hægt að veita að svo stöddu, en upplýst verði nánar um gang rannsóknarinnar eftir því sem henni vindur fram. Einnig er fjallað um málið á heimasíðu lögreglunnar í Kaupmannahöfn.
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Veður Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjá meira