Ég vil gera gagn Þórður Björn Sigurðsson skrifar 14. desember 2012 06:00 Dögun er nýtt samvinnumiðað umbótaafl sem sett hefur ýmis þjóðþrifamál á oddinn. Þar má nefna aðgerðir í efnahagsmálum, nýja stjórnarskrá og uppstokkun á stjórn fiskveiða. Dögun mun bjóða fram á landsvísu í næstu alþingiskosningum. Líta má á framboðið sem tillögu. Tillögu að forgangsröðun verkefna, aðferðafræði við lausn þeirra og tillögu að fólki til starfans. Ég hef ákveðið að gefa kost á mér á framboðslista Dögunar til að fylgja eftir því starfi sem ég hef tekið þátt í undanfarin misseri og snúa að lausn á efnahagsvanda þjóðarinnar og lýðræðisumbótum.Kjarabarátta Kjarabarátta er til í mörgum myndum. Ein birtingarmynd þeirrar baráttu er verðtryggingin, en ég tel nauðsynlegt að koma á þjóðarsátt um afnám hennar og almenna leiðréttingu lána. Innleiða þarf nýtt óverðtryggt húsnæðislánakerfi þar sem áhættu af viðskiptum með lánsfé er dreift. Hverfa verður frá þeirri ofuráherslu sem lögð hefur verið á séreignarstefnuna í húsnæðismálum. Einnig þarf að skapa skilyrði fyrir heilbrigðum leigumarkaði, meðal annars með opinberum leigufélögum sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni. Margir, og sér í lagi ungt fólk, eiga í erfiðleikum með að koma sér upp heimili. Á því verður að taka. Ég vil lögfesta lágmarkslaun og uppræta óútskýrðan launamun kynjanna. Stjórnir lífeyrissjóða eiga að mínu viti að vera kosnar af sjóðsfélögum. Að sama skapi sé ég fyrir mér að forsvarsmenn stéttarfélaga og heildarsamtaka þeirra verði í framtíðinni kosnir í allsherjarkosningu félagsmanna. Heildarendurskoðun á lífeyrissjóðakerfinu verður líka að fara fram, því kerfið stendur ekki undir framtíðarskuldbindingum sínum. Þá er óhjákvæmilegt að endursemja um opinberar skuldir svo afborganir og vaxtagreiðslur ógni ekki tilverugrundvelli þjóðarinnar. Síðast en ekki síst, í þessari ótæmandi upptalningu verkefna, vil ég eindregið að ný stjórnarskrá, á grundvelli frumvarps stjórnlagaráðs, verði að veruleika.Vondur draumur Upphaflega stóð ekki til af minni hálfu að fara út í stjórnmál þrátt fyrir áhuga á samfélagsmálum. Þær aðstæður sem sköpuðust á Íslandi haustið 2008 ráku mig hins vegar af stað. Þá gegndi ég stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra hjá ferðaþjónustufyrirtæki og var ekki mjög virkur í opinberri umræðu. Miklu fremur vildi ég huga að því sem stóð mér næst: fjölskyldunni, heimilinu og rekstri fyrirtækisins. Svo vaknaði ég við vondan draum. Hafði flotið sofandi að feigðarósi. Ég lofaði sjálfum mér í framhaldinu að gera allt sem í mínu valdi stæði til að koma í veg fyrir að þær aðstæður sem þá voru uppi gætu myndast aftur. Með það fyrir augum tók ég að mér það sjálfskipaða hlutverk að veita samfélaginu og stjórnvöldum aðhald. Meðal annars með því að tala við annað fólk um þjóðfélagsmál, skrifa pistla og taka þátt í stofnun og starfi Hagsmunasamtaka heimilanna, sem ég veitti formennsku um tíma. Haustið 2009 var ég ráðinn til starfa fyrir Hreyfinguna og þingmenn hennar. Vorið 2010 tók ég þátt í stofnun Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ, sem bauð fram í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Íbúahreyfingin lagði upp með áherslur á aukið íbúalýðræði, gegnsæi, valddreifingu, ábyrga fjármálastefnu og velferð íbúa. Íbúahreyfingin fékk næstflest atkvæði og vann kosningasigur. Ég er nú varabæjarfulltrúi hennar. Ég hef verið virkur þátttakandi í stofnun og starfi Dögunar og sit í framkvæmdaráði félagsins. Ég býð fram krafta mína og vona að þeir geti orðið að gagni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá María Gunnarsdóttir Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Halldór 13.06.2026 Halldór Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Skoðun Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Sjá meira
Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun