Óskar Bjarni tekur við kvennaliði Viborg 13. desember 2012 17:09 Óskar Bjarni í leik með Val.
Handboltaþjálfarinn Óskar Bjarni Óskarsson var í dag ráðinn þjálfari kvennaliðs Viborg út leiktíðina 2014. Hann mun að sama skapi láta af störfum sem þjálfari karlaliðsins félagsins. Þessi ráðning lá í loftinu í gær er tilkynnt var að Viborg ætlaði að draga liðið úr úrvalsdeild og byrja upp á nýtt í neðri deildum með heimamenn. Ekki fengust nægir peningar í karlaliðið til þess að halda því gangandi. "Ég verð samt viðloðandi karlaliðið eitthvað áfram og mun hjálpa þeim í gegnum breytingarnar. Það er leikur hjá þeim annað kvöld þar sem ég mun stýra liðinu. Svo mun ég færa mig yfir í að þjálfa eingöngu kvennaliðið smám saman í þessum mánuði," sagði Óskar Bjarni við Vísi en nánar verður rætt við hann í Fréttablaðinu á morgun. Viborg er eitt af stórveldum kvennahandboltans í Evrópu. Liðið hefur 13 sinnum orðið danskur meistari. Þrisvar sinnum hefur liðið unnið Meistaradeild Evrópu og síðast árið 2010. Þá vann liðið bæði deildina heima og Evrópukeppnina. Viborg er kvennafélag og leikmenn kvennaliðsins flestir atvinnumenn, ólíkt karlaliðinu. Óskar er að fara í mikið pressustarf enda var þáverandi þjálfari liðsins rekinn þó svo liðið væri á toppi dönsku deildarinnar.
Handbolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Fyrrverandi þjálfari Liverpool látinn Enski boltinn Elskar að spila fyrir Moyes sem hefur endurvakið feril hans Enski boltinn Hvort liðið ætlar að halda í við Liverpool? Enski boltinn „Hugmyndin var að verjast með fimm menn“ Enski boltinn Tveir í röð á Old Trafford í fyrsta sinn Fótbolti Sjáðu þriðju markaveislu Skagamanna í röð Fótbolti Dagskráin í dag: Stórleikir á Englandi og í Bestu, Formúla 1, Red Zone og margt fleira Sport Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin úr skrautlegum leik United og Chelsea Fótbolti Björn Borg tók of stóran skammt af eiturlyfjum Sport Fleiri fréttir Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sextán marka tap gegn Dönum staðreynd Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Valur sótti nauman sigur norður Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Haukar völtuðu yfir ÍR Orri skilaði þremur úr horninu í miklum markaleik Skylda að klippa vel neglur í handbolta Róbert hættir hjá HSÍ Kastaði stól í Eyjum og fékk þriggja leikja bann Janus sagður á leið til Barcelona Sigvaldi markahæstur í öruggum sigri Kolstad Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Hundfúll út í Refina Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Haukar sóttu tvö stig norður Sneypuför Stjörnumanna til Eyja Viggó magnaður í dramatísku jafntefli Sjá meira