Innlent

Bandóður ökumaður hafði í hótunum við lögreglu

Lögreglan handtók bandóðann ökumann á Reykjanesbraut á móts við Kauptún undir kvöld í gær, eftir að bíll hans hafði mælst á 136 kílómetra hraða, eða tæplega 50 kílómetrum yfir leyfilegum hámarkshraða.

Eftir að hann hafði loks numið staðar reyndist hann illvígur og hafði í hótunum við lögreglumenn, sem járnuðu hann og fluttu í fangageymslu.

Hann er talinn hafa verið undir áhrifum áfengis eða fíkniefna, eða jafnvel beggja þessara vímuefna, og var að auki réttindalaus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×