Innlent

Ákærður fyrir að káfa á sjö ára stúlku í gufubaði

Héraðsdómur Norðurlands eystra á Akureyri
Héraðsdómur Norðurlands eystra á Akureyri Mynd úr safni
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðislega áreitni gegn barni og brot gegn blygðunarsemi með því hafa í mars á þessu ári í gufubaðklefa í sundlaug í Eyjafirði, káfað innanklæða á kynfærum sjö ára gamallar stúlku, berað á sér getnaðarliminn og beðið stúlkuna að snerta hann og kysst stúlkuna einum kossi á munninn.

Aðalmeðferð í málinu fer fram síðar í þessum mánuði í Héraðsdómi Norðurlands eystra. Foreldri stúlkunnar gerir kröfu um að maðurinn greiði 800 þúsund krónur í miskabætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×