Íslenski boltinn

Tryggvi samdi við Fylki: Ég kem vonandi með eitthvað

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tryggvi Guðmundsson.
Tryggvi Guðmundsson. Mynd/Stefán
Tryggvi Guðmundsson skrifaði í kvöld undir eins árs samning við Fylki og mun spila með liðinu í Pepsi-deild karla næsta sumar. Tryggvi hefur spilað með ÍBV undanfarin þrjú sumur.

„Það er alltaf góð og notaleg stund þegar þessu er loksins lokið. Ég er mjög sáttur við þessa ákvörðun. Ég fann fyrir miklum áhuga frá þeim að fá mig og mér lýst mjög vel á Fylki og hvað planið er hjá þeim," sagði Tryggvi Guðmundsson þegar Vísir heyrði í honum í kvöld.

Ingimundur Níels Óskarsson hefur ákveðið að fara frá Fylki í FH en er það í verkhring Tryggva að fylla í hans skarð?

„Bæði og. Hann er meiri kantmaður og við erum kannski ekki líkar týpur inn á vellinum. Það er mikill missir í honum en ég kem vonandi með eitthvað. Sverrir Garðarsson er kominn inn líka með sína reynslu og gæði þegar hann er heill. Það reynir á mann og það er það sem maður vill," sagði Tryggvi.

„Mér fannst Ási (Ásmundur Arnarsson þjálfari Fylkis) spila vel úr spilunum sem hann hafði í sumar og þeir voru ekki langt frá því að komast í Evrópusæti eins og kannski öll önnur lið því þetta var skrýtið sumar. Það er klárt að stefnan er sett hærra næsta sumar," sagði Tryggvi.

Tryggvi á nú einn markametið en hann hefur skorað 129 mörk í 232 leikjum í efstu deild.

„Verður maður ekki að gera það og fara allavega upp fyrir 130 mörkin. Ég þarf nú bara eitt í það og það væri fín byrjun," sagði Tryggvi en ætla Fylkismenn sér Evrópusæti næsta sumar?

„Menn voru nálægt því að komast í Evrópukeppnina í sumar og það munaði ekki nema einum eða tveimur sigurleikjum. Ég tel að menn í liðinu hafi fundið hvað þeir voru nálægt þessu. Ég er búinn að spila nokkra Evrópuleikina og þekki aðeins til. Ég næ vonandi aðeins að smita út í strákana og reyni að segja þeim hversu djöfull skemmtilegt það er að spila í Evrópukeppninni. Það er klárlega markmiðið hjá liðinu," sagði Tryggvi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×