Innlent

Sigur rós leggur í sitt stærsta tónleikaferðalag

Hljómsveitin Sigur rós mun hefja stærsta tónleikaferðlag sitt til þessa á morgun og það með tónleikum í Ástralíu.

Sigur rós mun stíga á svið í 17 löndum, þar á meðal Bandaríkjunum, Hollandi og Japan. Alls mun hljómsveitin spila á 43 tónleikum. Af þeim verða 34 haldnir á tveggja mánaða tímabili í vor.

Stór hluti ferðalagsins hverfist um tónleikaröð í Norður-Ameríku en þar mun hljómsveitin stíga á svið í 15 borgum. Stærstu tónleikarnir verða haldnir í Madison Square Garden leikvanginum í New York, þann 25. mars. Tónleikahöllin tekur um 20 þúsund manns.

Sigur rós frumsýndi nýja tónleikadagskrá á tónleikum sínum á Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni fyrir rúmri viku. Þá frumflutti hljómsveitin nýtt lag, Brennisteinn, við mikinn fögnuð bæði aðdáenda og tónlistarspekúlanta.

Hljómsveitin mun brydda upp á nýjung fyrir tónleikagesti í Norður-Ameríku. Með hverjum keyptum miða fylgir stafrænt afrit af nýrri smáplötu með þremur áður óútgefnum lögum.

Hægt er að nálgast allar upplýsingar um tónleikaferðlagið hér. Áhugasamir geta síðan séð Sigur rós flytja lagið Brennisteinn hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×