Gera efnislegar athugasemdir við frumvarp stjórnlagaráðs Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. nóvember 2012 11:14 Stjórnlagaráð að störfum. Mynd/ GVA.
Sérfræðinganefnd sem hafði það hlutverk að fara yfir frumvarp stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá gerir töluverðar efnislegar athugasemdir við frumvarpið. Nefndin kynnti sjónarmið sín á fundi með stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í gær. Samkvæmt umboði frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hafði nefndin einkum það hlutverk að fara lagatæknilega yfir tillögur stjórnlagaráðs. Meðal annars að gæta þess að texti ákvæða væri skýr og í samræmi við hefðbundið lagamál og að hugtök væri skýr í greinargerð. Í þriðja kafla skilabréfs nefndarinnar kemur hins vegar fram að sérfræðingahópurinn hafi komið auga á fleiri atriði en lagatæknileg sem þurfi að hans mati að skoða betur og þá væntanlega við meðferð frumvarpsins á Alþingi. Í skilabréfinu tíundar hópurinn einungis þau atriði sem hann var sammála um að þyrfti að laga. Í bréfinu eru meðal annars gerðar athugasemdir við að í frumvarpi stjórnlagaráðs sé ekki getið um hlutdeild forseta í löggjafarvaldi, en í núgildandi stjórnarskrá er ákvæði um að forseti Íslands staðfesti frumvarp til laga. Þá segja sérfræðingarnir að stjórnlagaráð gangi langt í að opna fyrir persónukjör sem meginreglu og tillögurnar muni takmarka möguleika flokka til að ráða sínum málum, t.d. raða frambjóðendum á lista. Sérfræðingarnir segja að rétt væri að meta betur áhrif þessara breytinga sem og annarra breytinga sem lagðar eru til á fyrirkomulagi kosninga til Alþingis. Þá eru gerðar ýmsar athugasemdir við kafla um forsetann. Meðal annars eru gerðar athugasemdir við það að í frumvarpi stjórnlagaráðs sé ekki getið um hlutverk forseta í samskiptum við önnur ríki. Þetta hafi þó verið eitt hans helsta hlutverk. Um ráðherra- og ríkisstjórnarkafla segir sérfræðingahópurinn að tillaga um að Alþingi kjósi forsætisráðherra og að í vantrauststillögu á forsætisráðherra verði að felast tillaga um eftirmann, sé mjög róttæk tillaga. Nauðsynlegt sé að meta áhrifin af því í samhengi við önnur ákvæði frumvarpsins. Fram kom í hádegisfréttum Bylgjunnar að Gísli Tryggvason stjórnlagaráðsfulltrúi hefur óskað eftir fundi með formanni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis vegna tillögu sérfræðihóps um breytingar á nýrri stjórnarskrá. Hann telur hópurinn hafi mögulega farið út fyrir umboð sitt með fyrrgreindum athugasemdum.
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Veður Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjá meira