Innlent

Hefur þú séð dökkbláan Ford pallbíl?

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir dökkbláum pallbíl, Ford F350 árgerð 2005 með skráningarnúmerið YA-870, en bílnum var stolið frá bílasölu í austurborginni um síðustu helgi. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 eða senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×