Innlent

Misskilningur að það þurfi alltaf að fyrirgefa

Það er misskilningur að mikilvægt sé að fyrirgefa gerandanum. Það þarf ekkert. Þetta segir Bylgja Gunnur sem varð fyrir miklu einelti öll grunnskólaár sín á Dalvík.

Í Íslandi í dag var farið yfir áhrifamikla sögu Bylgju. Meðal annars sagði hún frá því þegar hún hellti sér yfir einn gerandann þegar þau hittust seinna.

Í dag er Bylgja ánægð með líf sitt en þannig var það ekki alltaf. Hún íhugaði alvarlega sjálfsvíg enda voru árin á Dalvík algjört helvíti eins og hún segir sjálf.

Hægt er að sjá viðtalið við Bylgju Gunni hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×