Innlent

Ók bíl í gegnum rúðu hjá Heklu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Tækjabíll frá slökkviliðinu og fjórir sjúkrabílar voru sendir á staðinn.
Tækjabíll frá slökkviliðinu og fjórir sjúkrabílar voru sendir á staðinn.
Bíl var ekið í gegnum rúðu á bílaumboðinu Heklu á Laugavegi nú rétt eftir hádegið. Fjórir sjúkrabílar og einn tækjabíll frá slökkviliðinu voru sendir á staðinn.

Litlar upplýsingar hafa fengist um málavexti, en svo virðist vera sem VW Golf hafi verið ekið á Toureg og sá síðarnefndi hafi runnið á rúðuna. Samkvæmt upplýsingum frá sjónarvottum varð kona í vegi fyrir Touregnum áður en hann lenti á rúðunni.

Tveir voru fluttir á slysadeild, en ekki er vitað hversu alvarlega þeir slösuðust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×