Innlent

Björgvin G. Sigurðsson um prófkjörið: Tek niðurstöðunni af stillingu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Björgvin G. Sigurðsson segist ganga ósár frá leiknum.
Björgvin G. Sigurðsson segist ganga ósár frá leiknum. Mynd/ GVA.
Auðvitað náði ég ekki settu marki og ég tek því af stillingu," segir Björgvin G. Sigurðsson. Hann laut í lægra haldi fyrir Oddný Harðardóttur í baráttu um fyrsta sæti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Björgvin var aftur á móti í fyrsta sæti fyrir síðustu kosningar, árið 2009. Hann segist hafa átt von á hverju sem var. „Það var mjög á brattan að sækja og þetta er búið að vera erfiður tími síðustu ár," segir hann. „Prófkjörið var afskaplega hófstillt og málefnalegt og ég óska Oddný til hamingju með afgerandi sigur," segir hann. Oddný sé vel að sigrinum komin.

Hann segist líka vera ánægður með það hvernig listinn skipast. „Það er ungt sveitastjórnarfólk sem kemur þarna inn í þriðja, fjórða og fimmta sæti og ég held að listinn sé öflugur," segir hann. Það er fínt í sjálfu sér að það er afgerandi niðurstaða og við göngum ósár frá leiknum. Allavega af minni háflu," segir hann.

Hann telur að staða sín, sem viðskiptaráðherra í hruninu hafi haft áhrif á niðurstöður prófkjörsins. „Það gefur augaleið að allir þeir sem voru á velli í þeim hörmungaratburðum bera af því pólitískan skaða. Það þarf enga vísindamenn til að greina það. Og það hafði að sjálfsögðu gífurleg áhrif, bara eins og siðustu ár merkja. Þetta er búið að vera mjög erfiður tími pólitískt og sumpart persónulega," segir hann.

Aðspurður segist hann ætla að taka sætið. „Já já og fer bara af því að fullum krafti að vinna að næstu kosningum," segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×